Ný skýrsla frá Kjaratölfræðinefnd

Fyrr í morgun var kynnt vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar, samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst árið 2019 og stendur enn, þróun efnahagsmála og launa.

Kynningin var í formi fjarfundar sem streymt var í gegnum heimasíðu Kjaratölfræðinefndar. Edda Rós Karlsdóttir, formaður nefndarinnar, kynnti skýrsluna og gerði grein fyrir helstu atriðum hennar og niðurstöðum. Þá fjallaði Margrét K. Indriðadóttir frá Hagstofu Íslands um áhrif vinnutímastyttingar á laun. Meðal nýjunga í skýrslunni er samanburður á launaþróun karla og kvenna, og á launaþróun innflytjenda og annarra. Tekið var við fyrirspurnum á meðan fundinum stóð og var nokkrum þeirra svarað í lok hans. Fundarstjórn var í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara.

Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Vorskýrslan er önnur skýrsla nefndarinnar, en gert er ráð fyrir framvegis komi út tvær á ári – vor og haust.

Skýrslan og tölfræðigögn eru aðgengileg á vef Kjaratölfræðinefndar. Það er von nefndarinnar að sá grunnur upplýsinga og tölfræðigagna sem settur er fram í skýrslunni nýtist haghöfum vel.