Ný rannsókn á upplifun starfsfólks á kynferðislegri áreitni á vinnustað

Steinunn að kynna niðurstöðurnar í gær
Steinunn að kynna niðurstöðurnar í gær

Í gær stóð Starfsgreinasambandið, ásamt systursamtökum á Norðurlöndum, fyrir ráðstefnu gegn staðalmyndum og kynferðislegri áreitni innan hótel-, veitinga- og ferðaþjónustunnar. Meðfram ráðstefnunni lét Starfsgreinasambandið, í samstarfi við Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands, vinna rannsókn á upplifun starfsfólks á kynferðislegri áreitni á vinnustað. Rannsóknin var unnin af Félagsvísindastofnun og Steinunni Rögnvaldsdóttur félags- og kynjafræðingi og verða niðurstöður hennar kynntar nánar á ráðstefnunni í dag.

Niðurstöðurnar rannsóknarinnar benda m.a. til þess að 41% þeirra sem starfað hafa í þjónustustörfum einhvern tíma á síðustu 10 árum hafi orðið fyrir áreitni, 26,4% karmanna og 50,4% kvenna. Þjónustustörf eru hér skilgreind sem störf á veitingahúsi (þar með talið kaffihúsi eða skyndibitastað) á hótelum eða í annarri ferðaþjónustu.  67,8% þeirra sem orðið hafa fyrir áreitni voru yngri en 24ra ára þegar alvarlegasta atvikið átti sér stað (ef þau voru fleiri en eitt). Kynferðisleg áreitni hefur meiri áhrif á öryggistilfinningu kvenna heldur en karla og það hefur meiri áhrif á öryggistilfinninguna að vera áreitt(ur) af vinnufélaga eða yfirmanni heldur en af viðskiptavini. Í yfir 60% tilvika kynferðislegrar áreitni í rannsókninni var gerandi viðskiptavinur, karlar verða frekar fyrir áreitni af hálfu viðskiptavina heldur en samstarfsmanna en algengara er að konur verði fyrri áreitni af hálfu samstarfsmanna eða yfirmanna.

Í tilkynningu frá SGS segir að það sé von SGS að þessi rannsókn og ráðstefnan í gær sé aðeins upphafið að stærra verkefni sem verður að koma kynferðislegri áreitni í samhengi við öryggi á vinnumarkaði og fjalla um það eins og önnur vinnuverndarmál. Rannsóknin sýnir svo ekki verður um villst að vandinn er síður en svo minni hér á landi en annars staðar og fullt tilefni til að taka alvarlega á málinu og vinna áfram að úrbótum. Þar bera margir ábyrgð; vinnueftirlit, atvinnurekendur, stéttarfélög, löggjafinn og framkvæmdavaldið.

Rannsókn á upplifun starfsfólks á kynferðislegri áreitni á vinnustað (PDF).