Ný íbúð í Reykjavík

Skrifað var undir samning þann 29. desember sl. um leigu á íbúð í Rauðarástíg 33 íbúð 302 í Reykjavík. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð, 83 fermetra, á 3. hæð. Lyfta er í húsinu og með henni fylgir bílastæði í bílakjallara. Reiknað er með að íbúðin verði komin í leigu fyrir félagsmenn í febrúar.

Ástæðan fyrir þessari leigu er að eigandi íbúðar á 6. hæð í Ásholtinu, sem félagið hefur verið með á leigu undanfarin ár, ætli ekki að framlengja leigusamninginn og því mun félagið missa þá íbúð 30. apríl nk.