Ný íbúð í Reykjavík

Eining-Iðja hefur tekið á leigu eina íbúð í Reykjavík. Félagið er því með átta íbúðir í notkun í Reykjavík, þar af þrjár sjúkraíbúðir. Nýja íbúðin er í Ásholti 2 6. hæð og verður notuð sem sjúkraíbúð. Íbúðin er um 60 fermetrar að stærð, eins og sjúkraíbúðin sem félagið á og er á 3. hæð í sama húsi.

ATHUGIÐ!
Ekki er hægt að panta sjúkraíbúðir í gegnum Félagavefinn. Nauðsynlegt er að hringja í síma á skrifstofur félagsins í síma 460 3600 til að panta þær.

Hér má sjá fleiri myndir úr nýju íbúðinni.