Ný forysta í Matvæla- og þjónustudeild

F.v.: Tryggvi og Stefán
F.v.: Tryggvi og Stefán

Á aðalfundi Matvæla- og þjónustudeildar í gær lét Margrét H. Marvinsdóttir af formennsku í deildinni, embætti sem hún var búin að sitja í frá því í apríl 2012. Nýr formaður var kjörinn Tryggvi Jóhannsson, en hann hefur verið varaformaður deildarinnar undanfarin ár. Stefán Aðalsteinsson var kjörinn nýr varaformaður.

Með þessum breytingum á stjórninn tekur Tryggvi nú þegar sæti í aðalstjórn félagsins í stað Margrétar, en formenn deilda eru sjálfkjörnir í aðalstjórn.