Núvitund og markþjálfun- námskeið

Í síðustu viku bauð Opinbera deild Einingar-Iðju upp á námskeið í núvitund og markþjálfun fyrir félagsmenn. Góð mæting var á námskeiðið, sem var ókeypis, en það fór fram í sal félagsins á 2. hæð Alþýðuhússins á Akureyri. 

Leiðbeinandi var Sigríður Ólafsdóttir, markþjálfi og ráðgjafi hjá Mögnum markþjálfun og ráðgjöf, en hún skoðaði og ræddi um núvitund, markþjálfun og velvild í eigin garð.