Námskeiðið verður í sal félagsins á Akureyri
Opinbera deild Einingar-Iðju býður upp á námskeið í núvitund og markþjálfun fyrir félagsmenn sem eru í deildinni.
- Hvenær: Á morgun, fimmtudaginn 31. janúar nk. kl. 19:30
- Hvar: Í sal félagsins á 2. hæð Alþýðuhússins á Akureyri
- Leiðbeinandi: Sigríður Ólafsdóttir, markþjálfi og ráðgjafi hjá Mögnum markþjálfun og ráðgjöf.
Námskeiðið er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig á það í síma 460 3600
Verið velkomin, stjórn Opinberu deildar félagsins