Nordisk Forum

Sextíu konur frá félögum sem eiga aðild að Starfsgreinasambandinu, þar af átta frá Einingu-Iðju, hafa síðustu daga setið Norrænu kvennaráðstefnuna Nordisk Forum í Malmö í Svíþjóð. Á heimasíðu SGS segir að ráðstefnan hafi ekki verið haldin síðustu 20 ár og var mál kvenna að tími væri til kominn til að Norrænar konur kæmu saman og ræddu verkefnin framundan og hvernig mætti verja það sem hefur áunnist. Alls voru tæplega 400 konur frá Íslandi á ráðstefnunni en hún taldi milli 10 og 20 þúsund þátttakendur. Dögunum í Malmö verður best lýst sem hlaðborði af menningu, fyrirlestrum, umræðum og öðrum viðburðum og létu Starfsgreinasambandskonur sitt ekki eftir liggja.

Niðurstaða ráðstefnunnar var yfirlýsing sem í lok hennar var afhent jafnréttisráðherrum Norðurlandanna og verður kynnt betur síðar en hana má nálgast á skandinavísku hér. Við lokaathöfnina hélt fyrrum varaforseti Suður-Afríku og núverandi framkvæmdastjóri UN-WOMEN, Phumzile Mlambo-Ngcuka, tölu og brýndi konur áfram með þeim orðum að verkefni Norðurlandanna væri að viðurkenna að jafnrétti væri ekki náð og vinna að fullu jafnrétti til að geta verið fyrirmynd fyrir önnur ríki sem hafa ekki náð jafn langt. Ljóst er að á heimsvísu er óttast afturför í jafnréttismálum og því er verkefnið að vinna að jafnrétti hér á Norðurlöndunum enn brýnna en ella. Brýning Phumzile Mlambo-Ngcuka var gott veganesti fyrir íslenskar konur til að taka með heim ásamt öllu öðru sem verður næstu daga og vikur unnið með innan sem utan SGS.

Á myndinni, sem fengin er af heimasíðu SGS, má sjá hluta SGS hópsins taka þátt í kvennahlaupinu sem að sjálfsögðu var hlaupið á ráðstefnusvæðinu síðasta laugardag.