Niðurstöður nýrrar Gallup könnunar komnar á netið

Niðurstöður nýrrar Gallup könnunar sem gerð var fyrir félagið eru komnar á heimasíðuna. Síðustu átta ár hefur Eining-Iðja í samstarfi við AFL Starfsgreinafélag fengið Gallup til að framkvæma viðamikla viðhorfs- og kjarakönnun á meðal félagsmanna sinna. Þessar kannanir eru sambærilegar könnunum sem nokkur önnur félög innan verkalýðshreyfingarinnar hafa látið gera.

Rannsókn sem þessi er afar gagnleg og getur félagið stuðst við niðurstöðurnar á mörgum sviðum til hagsbóta fyrir félagsmenn. Stjórn félagins vill þakka öllum þeim sem þátt tóku í launakönnun félagsins í ár.

Svarhlutfall hjá félaginu var 56,7% sem er nokkuð betra en í síðustu könnun.

41,7% svarenda voru karlar en 58,3% konur. 19% svarenda voru undir 25 ára aldri, 24,3% voru á aldrinum 25-34 ára, rúmlega 17% voru á aldrinum 35-44 ára, rúmlega 19% á aldrinum 45-54 ára og tæplega 21% voru 55 ára eða eldri.