Niðurstöður nýrrar Gallup könnunar félagsins komnar á netið

Nýlega lét félagið, í samstarfi við AFL starfsgreinafélag, Gallup framkvæma könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Um er að ræða sambærilega könnun og gerð hefur verið fyrir félögin sl. ellefu ár. Niðurstöður liggja nú fyrir og má sjá þær hér. Það er alltaf fróðlegt að bera þær saman við niðurstöður síðustu ára og sjá hvort miklar breytingar hafa átt sér stað.

Mikil ánægja er með þjónustu Einingar-Iðju og félagið sjálft. Um 96,5% svarenda sögðust vera sáttir eða hvorki né er spurt var hvort viðkomandi væri sáttur eða ósáttur við Einingu-Iðju, þar af merktu rétt tæplega 82% við að þau væru sátt við félagið. Tæplega 98% merktu við ánægður eða hvorki né er spurt var hversu ánægður eða óánægður ertu með þjónustu Einingar-Iðju þegar á heildina væri litið. Þetta eru mjög svo svipaðar niðurstöður og á síðustu árum.

Í könnuninni voru margir þættir kannaðir, m.a. um heildarlaun og dagvinnulaun, vinnutíma, vinnuálag, launaseðla, kjarasamninga og starfsumhverfi. 

Þegar spurt var hversu vel eða illa finnst þér Eining-Iðja standa sig í því að berjast fyrir hagsmunum félagsmanna sinna sögu 26,9% mjög vel, 50,2% vel og 18,0% hvorki né. Þetta eru mjög svipaðar niðurstöður en á síðasta ári.

Könnunin fór þannig fram að 3.000 félagsmenn voru valdir handahófskennt úr félagaskrám þessara tveggja félaga, 1.500 frá hvoru félagi. Það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður þegar slík könnun er framkvæmd, helst að fá alla til að svara, svo hægt sé að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn. Þeirra upplýsingar skipta miklu máli! 

Rannsókn sem þessi er afar gagnleg og getur félagið stuðst við niðurstöðurnar á mörgum sviðum. Stjórn félagsins vill þakka öllum þeim sem þátt tóku í viðhorfs- og kjarakönnun félagsins í ár.

Fleiri niðurstöður úr könnuninni munu birtast á heimasíðunni á næstunni.