Skráðu þig á nýtt netnámskeið með myndböndum fyrir ungt fólk sem er að skríða út í atvinnulífið. Í lok september 2014 hleypti VR af stokkunum VR-Skóla lífsins, netnámskeiði fyrir ungt fólk. Markmið skólans er að undirbúa fólk á aldrinum 16 til 24 ára fyrir vinnumarkaðinn og kynna því réttindi og skyldur í starfi. Um er að ræða 13 stutt myndbönd og einn verklegur hluti, en í lok hvers námskeiðs koma þátttakendur saman, leysa skemmtileg verkefni og fá útskriftarskírteini. Eining-Iðja og FVSA í samstarfi við VR bjóða upp á verklega hluta námskeiðsins á Akureyri með Dale Carnegie þjálfurum.
Námskeiðið kostar kr. 2.500. Skráning fer fram á www.vrskolilifsins.is
Tveir dagar eru í boði fyrir verklega hlutann á Akureyri. 25. nóvember 2014 eða 21. janúar 2015.
Nánar um skólann
Skólinn er alls í 14 þáttum þar sem stúlkunni, Líf, er fylgt eftir frá því hún leitar sér að vinnu þar til
hún er orðin reynslunni ríkari og örugg í starfi. Ellefu þættir af þessum 14 eru með leiknum myndbrotum, tveir með grafíklausnum og
sá síðasti er verklegur. Verklegi hlutinn er aldursskiptur, 16-20 ára eru saman og 21-24 ára sama. Þjálfarar frá Dale Carnegie leggja verkefni
fyrir þátttakendur og er áherslan á samskipti. Við skráningu greiða þátttakendur 2.500 kr. og geta ekki skráð sig í verklega
hlutann fyrr en þeir hafa farið í gegnum alla þættina og leyst verkefnin í lok hvers þáttar.
Hverjum þætti er skipt upp í þrennt;
Þátttakendur fylgja línulegu ferli. Þeir komast ekki áfram í náminu fyrr en þeir hafa svarað verkefnunum sem fylgja hverjum þætti fyrir sig. Ef þeir svara a.m.k. 75% rétt opnast aðgangur fyrir næsta þátt á eftir.
Þættirnir í skólanum eru eftirfarandi (allir nema sá síðasti eru á netinu):