Námskeið í vetur

Nú er hauststarfið að fara af stað í félaginu og búið að ákveða fund í fræðslunefndinni. Fundurinn verður í lok ágúst og og áður en hann verður haldinn vill félagið endilega fá hugmyndir frá félagsmönnum um hvaða námskeið það ætti að halda í vetur. 

Ef þú veist um eitthvað sniðugt námskeið sem félagið ætti að halda sendu þá endilega línu á Önnu Júlíusdóttur, starfsmann fræðslunefndar, á netfangið annajul@ein.is

Allar hugmyndir verða ræddar á fundinum og í framhaldinu ákvörðun tekin um námskeið vetrarins.