Námskeið í Austurlenskri matargerð

Námskeiðið verður í Hrísey
Námskeiðið verður í Hrísey

Laugardaginn 23. febrúar nk. verður haldið námskeið í austurlenskri matargerð fyrir félagsmenn í Hrísey, ef næg þátttaka fæst. Námskeið verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Hrísey og hefst það kl. 10:30. Ekkert námskeiðsgjald, en efniskostnaður er kr. 1.500.

Leiðbeinendur verða Nim og Noy frá Dalvík.

Skráning er hjá Hönnu Eyrúnu sem fyrst í síma 467 6918.