Næstu trúnaðarmannanámskeið

Mynd tekin á námskeiði fyrr á árinu
Mynd tekin á námskeiði fyrr á árinu

Ákveðið hefur verið að Eining-Iðja, í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu, gangist fyrir námskeiði fyrir félagslega trúnaðarmenn. Námskeiðið er tvískipt í þrep 1 og 2. Þrep 1 verður haldið dagana 5. til 7. október nk. og þrep 2 dagana 17. og 18. október nk. Forsenda þess að trúnaðarmenn geti sinnt starfi sínu sem skyldi er að sækja trúnaðarmannanámskeið.

Kennt verður í Einingar-Iðjusalnum alla dagana frá kl. 09:00 til 16:00. Námskeiðið er trúnaðarmönnum að kostnaðarlausu.

Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðið eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína, eigi síðar en mánudaginn 26. september nk. á skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, í síma 460 3600 eða í tölvupósti á ein@ein.is

ATH! Taktu fram ef þú hefur lokið þrepi 1 og ert bara að skrá þig á þrep 2. 

Hér má finna dagskrá námskeiðanna