Næstu trúnaðarmannanámskeið

Mynd af trúnaðarmannanámskeiði - þrepi 1
Mynd af trúnaðarmannanámskeiði - þrepi 1

Ákveðið hefur verið að Eining-Iðja, í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu, verði með trúnaðarmannanámskeið þrep 3 dagana 6. til 8. apríl nk. og þrep 4 dagana 25. og 26. apríl nk. Kennt verður í Einingar-Iðjusalnum alla dagana frá kl. 9:00 til 16:00. 

Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðið eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína til Brynju sem fyrst á skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, í síma 460 3600 eða á netfangið brynja@ein.is.