Næstu trúnaðarmannanámskeið

Trúnaðarmenn á námskeiði 2015
Trúnaðarmenn á námskeiði 2015

Ákveðið hefur verið að Eining-Iðja, í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu, verði með trúnaðarmannanámskeið þrep 1 dagana 24. til 26. febrúar nk. og þrep 2 dagana 3. og 4. mars nk. Kennt verður í Einingar-Iðjusalnum alla dagana frá kl. 9:00 til 16:00. 

Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðið eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína til Brynju, eigi síðar en mánudaginn 15. febrúar nk. á skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, í síma 460-3600 eða á netfangið brynja@ein.is.