Næstu trúnaðarmannanámskeið

Ákveðið hefur verið að Eining-Iðja, í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu, verði með trúnaðarmannanámskeið þrep 1 dagana 26. til 28. janúar nk. og þrep 2 dagana 5. og 6. febrúar nk. Kennt verður í Einingar-Iðjusalnum alla dagana frá kl. 9:00 til 16:00.

Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðið eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína til Brynju, eigi síðar en mánudaginn 19. janúar nk. í síma 460 3609 eða á netfangið brynja@ein.is


Dagskrá fyrir þrep 1

Dagskrá fyrir þrep 2