Næstu trúnaðarmannanámskeið

Frá síðasta námskeiði sem haldið var í mars
Frá síðasta námskeiði sem haldið var í mars

Ákveðið hefur verið að Eining-Iðja, í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu, verði með trúnaðarmannanámskeið þrep 1 dagana 27. til 29. október nk. og þrep 2 dagana 6. og 7. nóvember nk. Kennt verður í Einingar-Iðjusalnum alla dagana frá kl. 9:00 til 16:00. 

Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðið eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína til Brynju, eigi síðar en föstudaginn 10. október nk. í síma 460 3609 eða á netfangið brynja@ein.is.