Næstu trúnaðarmannanámskeið

Ákveðið hefur verið að Eining-Iðja, í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu, verði með trúnaðarmannanámskeið þrep 3 dagana 5. til 7. maí nk. og þrep 4 dagana 12. og 13. maí nk. Kennt verður í Einingar-Iðjusalnum alla dagana frá kl. 9:00 til 16:00. 

Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðið eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína til Brynju sem fyrst á skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, í síma 460-3600 eða á netfangið brynja@ein.is.