Næstu trúnaðarmannanámskeið

Ákveðið hefur verið að Eining-Iðja, í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu, verði með trúnaðarmannanámskeið þrep 1 dagana 8. til 10. mars nk. og þrep 2 dagana 23. og 24. mars nk. Kennt verður í Einingar-Iðjusalnum alla dagana frá kl. 9:00 til 16:00. 

Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðið eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína til skrifstofunnar á Akureyri, eigi síðar en föstudaginn 24. febrúar nk. á skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, í síma 460-3600 eða á netfangið ein@ein.is.