Næstu trúnaðarmannanámskeið

Ágætu trúnaðarmenn Einingar-Iðju. Það er búið  búið er að ákveða dagsetningar fyrir þau trúnaðarmannanámskeið sem haldin verða á vorönn. Þrep 3 og 4 verða í janúar, þrep 5 og 6 í febrúar og þrep 1 og 2 í mars. Búið er að senda bréf á trúnaðarmenn sem geta skrá sig á þrep 3 og 4, en skráning á þau þrep stendur nú yfir. Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 30. desember nk. Vinsamlegast hafið samband við ykkar vinnuveitendur sem fyrst til að tryggja að þið komist á námskeiðin.

Þrep 3 verður dagana 11. til 13. janúar og þrep 4 verður 23. og 24. janúar. Kennt verður í Einingar-Iðjusalnum alla dagana frá kl. 9:00 til 16:00. 

Námskeiðið er trúnaðarmönnum að kostnaðarlausu. Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðið eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína til skrifstofu félagsins á Akureyri eigi síðar en 30. desember nk., í síma 460 3600 eða á netfangið ein@ein.is ATH! Taka þarf fram ef viðkomandi hefur lokið þrepi 3 og er bara að skrá þig á þrep 4. 

Hér má finna dagskrá námskeiðanna