Næstu trúnaðarmannanámskeið

Ákveðið hefur verið að Eining-Iðja, í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu, verði með trúnaðarmannanámskeið þrep 3 og 4 dagana 13. til 15. og 25. til 26. nóvember nk. Kennt verður í Einingar-Iðjusalnum alla dagana frá kl. 9:00 til 16:00. Námskeiðið verður tvískipt að þessu sinni vegna óska trúnaðarmanna og vinnuveitenda. Trúnaðarmannanámskeið þetta er framhald af því sem haldið var síðastliðið haust og nefnist þriðja og fjórða þrep og er trúnaðarmönnum að kostnaðarlausu. Þetta námskeið kallaðist áður Trúnaðarmannanámskeið 2, en heitir nú Trúnaðarmannanámskeið 3. og 4. þrep.

Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðið eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína til Brynju, eigi síðar en þriðjudaginn 6. nóvember á skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, í síma 460-3600 eða á netfangið brynja@ein.is.


Hér má finna dagskrá námskeiðanna