N4 - Undirbúningur fyrir kjarasamninga

Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, mætti í Föstudagsþáttinn á sjónvarpsstöðinni N4 í síðustu viku og sagði m.a. frá undirbúningi fyrir næstu kjarasamninga. Hann minnti á könnun félagsins sem verður í vikunni. Þar verða félagsmenn spurðir hvað beri að leggja áherslu á við gerð næstu kjarasamninga. Könnunin verður framkvæmd á vinnustöðum af trúnaðarmönnum.

Ef trúnaðarmaður er ekki á vinnustaðnum þínum þá getur þú haft samband við skrifstofur félagsins.

Hér má sjá viðtalið