Á heimasíðu SGS kemur fram að sjónvarpsstöðin N4 hefur gert sex myndbönd um öryggismál starfsfólks í fiskvinnslu undir yfirskriftinni „Öryggi er allra hagur“. Myndböndunum er ætlað að vera fræðandi og benda á mikilvægi þess að allir sem koma að vinnslunni séu meðvitaðir um að öryggis- og hreinlætismál séu í góðu lagi.
Slysum í fiskvinnslum hefur því miður farið fjölgangi á undanförnum árum og því er mikilvægt að fyrirtæki í fiskvinnslu bregðist við með aukinni fræðslu í vinnuvernd, en komið hefur í ljós að slysin tengjast oftar en ekki vélbúnaði.
Starfsgreinasambandið og Eining-Iðja fagna þessu framtaki og hvetur starfsfólk í fiskvinnslum til að kynna sér myndefnið – það er aldrei of varlega farið!