Myndband um VIRK Starfsendurhæfingarsjóð

Hlutverk og starfsemi VIRK eru gerð skil í stuttu máli á íslensku og ensku í nýju kynningarmyndbandi sem birt var nýverið á vef VIRK. VIRK – Starfsendurhæfingarsjóður er sjálfseignarstofnun með aðild allra helstu samtaka stéttarfélaga og atvinnurekenda á vinnumarkaði.

Hlutverk VIRK er að móta, samþætta og hafa eftirlit með þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem miðar markvisst að atvinnuþátttöku einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa. 

Á Eyjafjarðarsvæðinu starfa fjórir ráðgjafar hjá VIRK, þær Dalrós, Elsa, Hildur Petra og Nicole. Þær eru starfmenn Einingar-Iðju, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu.

Tilgangur með þjónustu á vegum VIRK er að aðstoða fólk við að komast til vinnu. Um er að ræða markvissa ráðgjöf og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem krefst fullrar þátttöku viðkomandi einstaklings. Þjónusta VIRK er einstaklingum að kostnaðarlausu.

VIRK starfar í nánu samstarfi við stéttarfélög, atvinnurekendur, ýmsa þjónustuaðila í starfsendurhæfingu og stofnanir velferðarkerfisins. Á vegum VIRK starfa sérhæfðir ráðgjafar í starfsendurhæfingu sem eru staðsettir hjá stéttarfélögum víða um land, þverfagleg teymi sérfræðinga sem vinna að gerð árangursríkra starfsendurhæfingaráætlana auk þess sem fjölbreyttur hópur fagaðila veitir sérhæfða þjónustu og ráðgjöf á sviði starfsendurhæfingar.

Kynningarmyndbandið má sjá hér.