Morgunverðarfundur um loftslagsmál í sjónvarpi ASÍ

Eitt af mikilvægustu málefnum dagsins í dag eru loftlagsbreytingar af mannavöldum og neikvæðar afleiðingar þeirra fyrir komandi kynslóðir. Umhverfisbreytingar hafa víðtæk áhrif á efnahags- og atvinnulíf framtíðarinnar og lífskjör almennings. Umhverfisnefnd ASÍ efndi þann 14. maí til fræðslu- og umræðufundar um leiðir til að sporna við þessari uggvænlegu þróun og um leið að horfa til framtíðar. Á fundinum voru haldin þrjú afar áhugaverð erindi sem nú má sjá í sjónvarpi ASÍ með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan.

Stóra myndin – umhverfisleg sjálfbærni, fyrirtæki og starfsmenn
Lára Jóhannsdóttir, nýdoktor í viðskiptafræðideild HÍ og stjórnarmaður í Lífeyrissjóði starfsmanna Búnaðarbanka Íslands

Er siðlaust að menga? Hlutverk verkalýðshreyfingarinnar á 21. öldinni
Þórunn Sveinbjarnardóttir, MA í hagnýtri siðfræði og fyrrverandi umhverfisráðherra

Umhverfis- og samfélagsábyrgð fyrirtækja
Finnur Sveinsson, varaformaður Festu og sérfræðingur í samfélagsábyrgð hjá Landsbankanum