Minnum á aðventudag stéttarfélaganna í Skipagötu 14 á Akureyri laugardaginn 15. desember nk. Þá ætla
stéttarfélögin og VIRK starfsendurhæfingarsjóður að hafa opið hús á skrifstofum sínum. Einnig verður opið hús á
skrifstofu félaganna í Fjallabyggð og á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík.
Þarna er gott tækifæri til að forvitnast um félögin og VIRK og fá sér heitt kakó og eitthvað góðgæti.
Opnunartímar:
Dalvík – milli kl. 10 og 12.
Fjallabyggð – milli kl. 13 og 15.
Akureyri - milli kl. 14 og 17.
Starfsfólk félaganna og ráðgjafar hjá VIRK vona að félagsmenn muni líta við.