Minningarmót Jóns Ingimarssonar Skákmeistara og verkalýðsfrömuðar verður haldið í lþýðuhúsinu á Akureyri dagana 26. til 28. apríl 2013. Mótshaldarar eru Skákfélag Akureyrar og Eining-Iðja. Mótið er haldið tilefni af því að á þessu ári eru 100 ár liðin frá fæðingu Jóns.
Jón Ingimarsson var um árabil ein helsta driffjöðrin í starfi Skákfélags Akureyrar og lengi formaður þess. Árið 1973 gerði félagið hann að heiðursfélaga. Í nokkur ár sat Jón í stjórn Skáksambands Íslands. Hann tefldi á skákmótum í hálfa öld, allt frá því á árinu 1931 og þar til stuttu áður en hann lést árið 1981. M.a. tefldi hann í landsliðflokki á Skákþingi Íslands og á Norðurlandamóti. Hann varð skákmeistari Norðlendinga árið 1961.
Jón lagði gjörva hönd á margt fleira á sínum ferli. Hann var einn af stofnendum Iðju, félags verksmiðjufólks á Akureyri og var formaður félagsins frá 1946 til dauðadags, alls í 35 ár. Þá sat hann í bæjarstjórn Akureyrar í 8 ár og starfaði lengi með Leikfélagi Akureyrar, svo nokkuð sé nefnt.
Í aldarminningu Jóns mun Skákfélag Akureyrar og Eining-Iðja í samvinnu við Ingimar Jónsson halda veglegt skákmót dagana 26-28. apríl nk. Á mótinu verða tefldar 10 mínútna skákir, alls 17-21 umferð, eftir fjölda þátttakenda. Teflt verður í Alþýðuhúsinu við Skipagötu.
Dagskrá mótsins verður sem hér segir :
Öllum er heimil þátttaka í mótinu meðan húsrúm leyfir. Þeir skákmenn sem voru samtímis Jóni og öttu kappi við við skákborðið eru sérstaklega boðnir velkomnir.
Þegar hafa um 20 skákmeistarar skráð sig til þátttöku, þar á meðal Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga.
Hægt er að skrá þátttöku hjá formanni Skákfélags Akureyrar á netfangið askell@simnet.is