Brotastarfsemi á borð við kennitöluflakk og mansal er óásættanleg meinsemd á íslenskum vinnumarkaði. Slík háttsemi hefur alvarleg og víðtæk áhrif fyrir launafólk, atvinnulífið og samfélagið allt og veldur bæði persónulegu og samfélagslegu tjóni. ASÍ hefur á undanförnum árum opinberað margar ljótar sögur af glæpastarfsemi á vinnumarkaði en á sama tíma gagnrýnt andvaraleysi og ótrúlegt langlundargeð stjórnvalda gagnvart slíkum brotum.
Alþýðusamband Íslands fagnar því sérstaklega niðurstöðu starfshóps aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda sem var algjörlega einróma í sínum tillögum og er óhætt að taka undir það. Í þeirri vinnu hlutu tillögur ASÍ um úrbætur mikinn hljómgrunn. Áralöng barátta ASÍ gegn athæfi svindlarana virðist því hafa skilað árangri.
Lagt er til að löggjöf og regluramminn verði treystur og bætt úr núverandi göllum. Þá er lagt til að samstarf stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins gegn svikastarfseminni verði formbundið til framtíðar.
Helstu tillögur starfshópsins eru:
Alþýðusamband Íslands gerir kröfur til þess að tillögunum verði fylgt fast eftir. Mörgum þeirra má þegar hrinda í framkvæmd á meðan aðrar kalla á frekari vinnu og útfærslur. Til að svo megi verða þarf pólitískan vilja og skuldbindingu stjórnvalda.
ASÍ mun í viðræðum við stjórnvöld, í tengslum við gerð kjarasamninga, leggja ríka áherslu að allt verði gert til að sporna við félagslegum undirboðum, mansali og annari brotastarfsemi á vinnumarkaði.