Mikil ánægja með félagið og þjónustuna

Mikil ánægja er með þjónustu Einingar-Iðju og félagið sjálft skv. niðurstöðum nýrrar Gallup könnunar. 96% svarenda sögðust vera sáttir eða hvorki né er spurt var hvort viðkomandi væri sáttur eða ósáttur við Einingu-Iðju og tæplega 96,9% merktu við ánægður eða hvorki né er spurt var hversu ánægður eða óánægður ertu með þjónustu Einingar-Iðju þegar á heildina væri litið. Þetta eru mjög svipaðar niðurstöður og á síðustu tveimur árum, reyndar aðeins betri.

53,3% svarenda sögðust hafa nýtt sér einhverja þjónustu hjá félaginu undanfarna 12 mánuði. Það má alveg benda á þá sérkennilegu staðreynd sem fram koma í niðurstöðum þessarar könnunar að þeir sem minna eru ánægðir með þjónustu félagsins eru þeir sem segjast ekki hafa nýtt sér hana. 

Niðurstöður nýrrar Gallup könnunar sem gerð var fyrir félagið