Miðstjórn ASÍ skorar á fjármálaráðherra að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót

Miðstjórn ASÍ fjallaði á fundi sínum í dag um þá ákvörðun fjármálaráðuneytisins að greiða atvinnuleitendum enga desemberuppbót eins tíðkast hefur frá árinu 2010. Miðstjórnin skorar á fjármálaráðherra að endurskoða ákvörðun sína og mótaður verður skýr farvegur fyrir um greiðslu desemberuppbótar til handa þessum hópi í framtíðinni.