Miðstjórn ASÍ sendir frá sér tvær ályktanir

Á fundi miðstjórnar ASÍ í dag voru tvær ályktanir samþykktar.

Sú fyrri fjallar um skýrslu OECD þar sem m.a. er lagt til að lögverndun tiltekinna starfstétta verði aflögð og rekstur Keflavíkurflugvallar verði settur í hendur einkaaðilum. Þessum hugmyndum og fleirum sem koma fram í skýrslunni mótmælir miðstjórn ASÍ harðlega.

Í hinni ályktuninn er þess krafist að fjármálastofnanir skili vaxtalækkunum og lækkun bankaskatts til neytenda auk þess sem hækkun vaxtaálags bankanna er harðlega mótmælt.