Miðstjórn ASÍ ályktar um kjaramál

Miðstjórn ASÍ ályktaði um kjaramál á fundi sínum fyrr í dag.

"Aðildarfélög ASÍ gerðu kjarasamning við Samtök atvinnulífsins um síðustu áramót sem ætlað var að stuðla að stöðugleika í gengi og verðlagi. Samningsaðilar litu á samninginn sem tilraun sem byggði á því að breið samstaða næðist í samfélaginu um þá sýn að leggja áherslu á stöðugleika og hóflegar kauphækkanir. Samið var um 2,8% almennar launahækkanir auk sérstakra hækkana á lægstu laun. 

Nú er ljóst að tilraunin hefur mistekist. Stórir hópar sem sömdu í kjölfarið hafa samið um allt annað og meira en talið var að væri til skiptana í kringum áramótin. Má þar nefna grunn- og framhaldsskólakennara sem sömdu við ríki og sveitarfélög um tæplega 30% hækkanir til þriggja ára, flugmenn sem meta nýgerðan skammtímasamning sinn við Icelandair á 8% á ársgrundvelli og háskólamenn hjá sveitarfélögum.

Miðstjórn ASÍ telur einsýnt að verkefnið í þeim samningum sem eftir á að gera á þessu ári s.s. ASÍ félaga við sveitarfélög taki mið af nýgerðum samningum við kennara, flugmenn ofl. Þá er ljóst að í þeim kjarasamningum sem losna upp úr næstu áramótum verður áherslan á að leiðrétta hlut þeirra sem setið hafa eftir í launabreytingum á þessu ári."