Margir vildu rækta sínar eigin kryddjurtir

Svona á að gera þetta!
Svona á að gera þetta!

Um síðustu helgi stóð Eining-Iðja fyrir kryddjurtanámskeiði fyrir félagsmenn. Þar fór Jóhanna Magnúsdóttir garðyrkjufræðingur yfir hvernig best sé að rækta eigin kryddjurtir.

Greinilegt er að fjölmargir félagsmenn eru með græna fingur, því ágætis mæting var á námskeiðið sem fór fram í sal félagsins á Akureyri.