Málþing er ber yfirskriftina Heilbrigðismál sem kosningamál verður haldið þriðjudaginn 14. september nk. milli kl. 14.00 og 17.00. Málþingið er skipulagt í samvinnu ASÍ og BSRB og haldið á Hótel Nordica eftir því sem fjöldatakmarkanir leyfa en einnig sent út í streymi. Hlekkur á streymi frá málþinginu
„Heilbrigðismál eru kosningamál,“ bergmálar í fjölmiðlaumfjöllun í aðdraganda Alþingiskosninga. Heilbrigðiskerfið hefur gengið í gegnum mikla þolraun á síðustu misserum. En jafnvel þótt heimsfaraldrinum linni er krísa heilbrigðisþjónustunnar langt í frá í baksýnisspeglinum. Þetta kjörtímabil hafa heilbrigðismálin öðru fremur litast af heimsfaraldrinum, en einnig af uppbyggingu heilsugæslunnar, rekstrarvanda Landspítalans, úrræðaleysi í málefnum aldraðra, afleiðingum af þjónustuskerðingu á landsbyggðinni og átökum um umfang og eðli einkarekinnar læknisþjónustu. Almenningur styður öflugt, opinbert heilbrigðiskerfi en háværar raddir í stjórnmálaumræðunni leggja til frekari markaðsvæðingu heilbrigðisþjónustunnar, þvert á vilja kjósenda.
Á þessu málþingi verður fjallað um heilbrigðismál út frá hagsmunum og réttindum almennings. Hvernig tryggjum við jafnt aðgengi og góða heilbrigðisþjónustu? Hvaða áhrif myndi aukin markaðsvæðing heilbrigðiskerfisins hafa? Í lok málþingsins fá fulltrúar stjórnmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis tækifæri til að koma kosningaáherslum sínum í heilbrigðismálum á framfæri.
Boðið verður upp á túlkun milli íslensku og ensku.
Dagskrá
14:00 – 15.15
15:15 – 15:30 Kaffihlé
15.30 – 17.00
Málþingsstjóri: Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu – rannsóknastofnunar Vinnumarkaðarins