Málað á steina

Viltu læra að mála á steina?

7. september nk. verður haldið námskeið í steinamálun fyrir félagsmenn. Námskeiðið stendur yfir milli kl. 10 og 16 og verður haldið í sal félagsins á Akureyri, á 2. hæð Skipagötu 14.

Leiðbeinandi verður Eygló Kristjánsdóttir

Námskeiðið er ókeypis, en efnisgjald er kr. 5.000.

Skráning sem fyrst í síma 460 3600 eða á annajul@ein.is