Málað á kerti -"One stroke”

Fyrirhugað er að halda námskeið fyrir félagsmenn í kertamálun með “One stroke” aðferð. Kennt verður að mála greni, ber og jólakúlu á kerti.

  • Hvenær: Miðvikudaginn 26. nóvember nk. kl. 18:00
  • Hvar: Í sal félagsins á Akureyri
  • Hámarksfjöldi: 8

Ekkert námskeiðsgjald, en efniskostnaður verður kr. 3.000.

Leiðbeinandi verður Linda Óladóttir

Skráning á skrifstofum Einingar-Iðju sem fyrst og í síma 460 3600, á venjulegum opnunartíma.