Magnað að sjá hve íslenskt hugvit er áberandi

Starfsmenn Einingar-Iðju sem starfa á kjarasviði félagsins kynntu sér starfsemi hátæknivinnsluhúss Samherja á Dalvík fyrr í vikunni, en langflestir starfsmenn vinnslunnar á Dalvík eru í Einingu-Iðju. Vinnsla hófst í nýja hátæknivinnsluhúsinu í lok júlí á síðasta ári en vegna Covid-19 hefur starfsfólkið þurft að starfa við mjög svo krefjandi aðstæður. Til dæmis fengu engir utanaðkomandi að fara inn í húsið svo mánuðum skiptir vegna heimsfaraldursins. Það var Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja, sem tók á móti gestunum en hann og Sigurður Jörgen Óskarsson, yfirverkstjóri á Dalvík, leiddu skoðunarferðina um húsið. 

Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju segir að hann hafi fyrir stuttu skoðað húsið sem formaður Starfsgreinasambands Ísland ásamt Flosa framkvæmdastjóra þess. „Stjórn Einingar-Iðju skoðaði húsið áður en vinnsla hófst í fyrra en það er óneitanlega annað að koma hér inn þegar vinnsla er í húsinu. Eins og ég lét hafa eftir mér þegar ég skoðaði húsið með Flosa um daginn þá er gríðarleg tækni hér inni og alveg magnað að sjá hve íslenskt hugvit er áberandi. Hljóðdempunin í vinnslusölum er gríðarlega stórt heilsufarsmál og það sama má segja um lýsinguna í húsinu sem er mjög góð. Við starfsmenn Einingar-Iðju vorum sammála að lokinni skoðun að greinilegt er að mjög hafi verið hugsað um vinnuaðstæður starfsfólks við hönnun hússins.“ 

Með aukinni tækni hafa flest störf í fiskvinnslu tekið miklum breytingum sem vel má sjá í húsinu. Stórir og litlir róbótar eru áberandi. Störfin eru orðin sérhæfðari en um leið líkamlega léttari. „Allar aðstæður eru til mikillar fyrirmyndar. Heimsfaraldurinn hefur gert það að verkum að starfsfólkið hefur þurft að starfa við mjög svo krefjandi aðstæður en sem betur fer hefur tekist að halda vinnslunni gangandi. Það var gott fyrir starfsmenn félagsins að fá að koma í húsið, spjalla við starfsfólkið og kynna sér tæknina og aðbúnað,“ segir Björn.