Mættu í HOF kl. 13 í dag! - Réttlátur vinnumarkaður – allra hagur!

Minnum á opinn fund sem haldinn verður kl. 13 í dag í Hofi á Akureyri. Þar verður rætt um stöðuna á vinnumarkaði m.t.t. undirboða og brotastarfsemi. Allir eru hvattir til að mæta en loka verður á skrifstofum félagsins vegna fundarins.

Mættu og taktu þátt í fjörugri umræðu um betra samfélag.

Að fundinum standa ASÍ og ASÍ stéttarfélögin í Eyjafirði.

Hér má sjá brot úr síðasta föstudagsþætti á N4, viðtal við Vilhelm Adolfsson þar sem fjallað er um vinnustaðaeftirlit og fundinn í dag.

Dagskrá:

13:00 – 13:10          Eiður Stefánsson, formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri, opnar málþingið og gerir grein fyrir markmiði þess.

13:10 – 13:30          Vilhelm Adolfsson, verkefnastjóri vinnustaðaeftirlitsins á Norðurlandi, gerir grein fyrir starfinu.

13:30 – 13:50         Sigmundur Einar Ófeigsson, framkvæmdastjóri AFE Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar.

13:50 – 14:10         Hrafnhildur Elín Karlsdóttir, hótelstjóri á hótel KEA á Akureyri.

14:10 – 14:30         Gunnhildur Gylfadóttir, formaður BSE, Búnaðarsambands Eyjafjarðar.

14:30 – 14:50          Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska.

14:50 – 15:10          Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri: Greining á því hver verkefni samfélagsins eru? Hvað kostar samneyslan og hvað kosta undirboð samfélagið?

15:10 – 15:25          Kaffi

15:25 – 17:00          Pallborð: Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Auk þess munu allir fyrirlesarar taka þátt í pallborði.

Fundarstjóri: Soffía Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnun Norðurlandi eystra og Austurlandi.