Lokun orlofshúsa og íbúða félagsins vegna Covid-19

Vegna ástandsins í þjóðfélaginu hefur félagið ákveðið að afturkalla allar leigur á orlofshúsum og íbúðum frá 4. til 18. nóvember nk. Við munum að sjálfsögðu fylgjast með fréttum og stöðu á samkomubanni. Við látum vita ef eitthvað breytist.

Starfsmenn eru núna að hringja í þá félagsmenn sem eiga bókað á þessu tímabili og láta vita af stöðunni.