Vegna ástandsins í þjóðfélaginu lokaði félagið fyrir leigur á orlofshúsum og íbúðum á tímabilinu 4. til 18. nóvember. Nú hefur verið ákveðið að framlengja tímabilið og afturkalla allar leigur til 2. desember nk. Við munum að sjálfsögðu fylgjast með fréttum og stöðu á samkomubanni. Við látum vita ef eitthvað breytist.
Starfsmenn eru núna að hringja í þá félagsmenn sem eiga bókað á þessu tímabili og láta vita af stöðunni.