Lokum kl. 14:55 í dag - BREYTUM EKKI KONUM – BREYTUM SAMFÉLAGINU!

Í dag, miðvikudaginn 24. október, verður lokað á skrifstofum félagsins frá kl. 14:55. Sjáumst kl. 15:15 í dag á Ráðhústorginu á Akureyri og í Ungó á Dalvík.

Breytum ekki konum, breytum samfélaginu! Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna eru meðalatvinnutekjur kvenna 74% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 26% lægri atvinnutekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 5 klukkustundir og 55 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:55.

Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:55 í dag, miðvikudaginn 24. október, og fylkja liði á samstöðufundi sem fram fara víða um land.

Á Akureyri verður samstöðufundur á Ráðhústorgi kl. 15:15

Á Dalvík verður samstöðufundur í Ungó kl. 15:15

Hægt er að fá frekar upplýsingar um Kvennafrí á heimasíðunni: www.kvennafri.is