Lokað milli kl. 8 og 13 á Akureyri í dag - Lokað á Dalvík og Fjallabyggð

Starfsmenn félagsins verða á námskeiði í dag um nýtt orlofshúsakerfi sem félagið er að taka í notkun. Vegna þess verður skrifstofa félagsins á Akureyri lokuð milli kl. 8:00 og 13:00 í dag, 11. mars. Skrifstofur félagsins á Dalvík og í Fjallabyggð verða lokaðar allan daginn. 

Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.