Lokað á morgun vegna fræðsludags

Skrifstofur félagsins verða lokaðar á morgun, föstudaginn 16. maí, vegna fræðsludags starfsmanna, trúnaðarmanna og annarra sem gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið. Rúmlega 100 félagsmenn eru nú þegar búnir að skrá sig á fræðsludaginn sem fram fer í Hofi á Akureyri. Við opnum aftur á venjulegum opnunartíma mánudaginn 19. maí nk.