Lokað á Akureyri í dag, svarað í síma á Dalvík og í Fjallabyggð

Smá breyting í gangi
Smá breyting í gangi

Vegna framkvæmda og breytinga á skrifstofu félagsins á Akureyri er skrifstofan lokuð í dag. Það er opið á skrifstofum félagsins á Dalvík og í Fjallabyggð og sjá starfsmenn þar um alla símsvörun í dag.

Skrifstofa félagsins á Akureyri mun verða í salnum á 4. hæð Alþýðuhússins í janúar og febrúar, eða á meðan breytingar standa yfir á 2. hæðinni. Við opnum á 4. hæðinni næsta mánudag, en í gær og í dag eru starfsmenn félagsins að koma sér fyrir í salnum. Unnið er í því að tengja tölvur og síma og verður því verki vonandi lokið síðar í dag.