Lögmannsþjónusta í Fjallabyggð

Ásgeir Örn
Ásgeir Örn

Félagsmenn Einingar-Iðju eiga þess nú kost að sækja sér lögmannsþjónustu í Fjallabyggð, en lögmenn félagsins munu vera til viðtals á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð, Eyrargötu 24b Siglufirði. Lögmenn félagsins verða næst til viðtals þriðjudaginn 23. október nk. frá kl. 9:00 til 15:00.

Tímapantanir í síma 440 7900. Fyrsta viðtal er frítt.

Minnt er á að félagsmenn Einingar-Iðju sem leita til lögmanna félagsins eiga rétt á 15% af almennu tímagjaldi, skv. samningi Einingar-Iðju og PACTA lögmanna, lögmanna félagsins.

Ásgeir Örn Jóhannsson mun verða á Siglufirði fyrir hönd PACTA lögmanna, lögmanna Einingar Iðju. Næstu skipti eru fyrirhuguð:

  • 7. nóvember
  • 18. desember