Lögmannsþjónusta í Fjallabyggð

Ásgeir Örn Jóhannsson
Ásgeir Örn Jóhannsson

Félagsmenn Einingar-Iðju eiga þess nú kost að sækja sér lögmannsþjónustu í Fjallabyggð, en lögmenn félagsins munu vera til viðtals á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð, Eyrargötu 24b Siglufirði, mánaðarlega framvegis.

Fyrsti dagurinn er 25. september nk. og verða lögmenn félagsins til viðtals frá kl. 9:00 til 15:00. Tímapantanir í síma 440 7900.

Minnt er á að félagsmenn Einingar-Iðju sem leita til lögmanna félagsins eiga rétt á 15% af almennu tímagjaldi, skv. samningi Einingar-Iðju og PACTA lögmanna, lögmanna félagsins.

Ásgeir Örn Jóhannsson mun verða á Siglufirði fyrir hönd PACTA lögmanna, lögmanna Einingar Iðju.

Næstu skipti eru fyrirhuguð:

  • 23. október
  • 7. nóvember
  • 18. desember