Lögfræðingar félagsins í Fjallabyggð og á Dalvík

Lögfræðingar félagsins verða næst með viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð, Eyrargötu 24b Siglufirði, þriðjudaginn 26. nóvember nk. á milli kl. 10 og 14. Tímapantanir í síma 440 7900. Fyrsta viðtal er frítt.
Ásgeir Örn Jóhannsson mun verða á staðnum fyrir hönd PACTA lögmanna, lögmanna Einingar-Iðju.
Frá og með desember munu lögmenn félagsins einnig verða til viðtals á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík. Þeir verða næst til viðtals:

Fimmtudagur 12. desember

Siglufjörður milli kl. 9 og 13
Dalvík milli kl. 14 og 17

Miðvikudagur 15. janúar
Siglufjörður milli kl. 9 og 13
Dalvík milli kl. 14 og 17

Tímapantanir í síma 440 7900. Fyrsta viðtal er frítt.

Minnt er á að félagsmenn Einingar-Iðju sem leita til lögmanna félagsins eiga rétt á 15% af almennu tímagjaldi, skv. samningi Einingar-Iðju og PACTA lögmanna, lögmanna félagsins.