Loftslagsbreytingar og almannahagur

Eitt af mikilvægustu málefnum dagsins í dag eru loftlagsbreytingar af mannavöldum og neikvæðar afleiðingar þeirra fyrir komandi kynslóðir. Umhverfisbreytingar hafa víðtæk áhrif á efnahags- og atvinnulíf framtíðarinnar og lífskjör almennings. Alþjóðlegur samtakamáttur er eina leiðin til að vinna gegn þessari þróun og þar hefur verkalýðshreyfingin mikilvægu hlutverki að gegna. Umhverfisnefnd ASÍ efnir til fræðslu- og umræðufundar um leiðir til að sporna við þessari uggvænlegu þróun og um leið að horfa til framtíðar.

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 14. maí milli  kl. 08:00 og 10:15 á Grand Hótel Reykjavík.

Þátttökugjald er 2.500 krónur. Áhugasamir geta skráð þátttöku á fundinn hér.

Dagskrá:

  • 8:00       Morgunverðarhlaðborð
  • 8:30       Setning –
    • Heimir Janusarson, formaður umhverfisnefndar ASÍ
  • 8:40       Stóra myndin – umhverfisleg sjálfbærni, fyrirtæki og starfsmenn
    • Lára Jóhannsdóttir, nýdoktor í viðskiptafræðideild HÍ og stjórnarmaður í Lífeyrissjóði starfsmanna Búnaðarbanka Íslands
  • 9:00       Er siðlaust að menga? Hlutverk verkalýðshreyfingarinnar á 21. öldinni
    • Þórunn Sveinbjarnardóttir, MA í hagnýtri siðfræði og fyrrverandi umhverfisráðherra
  • 9:20       Umhverfis- og samfélagsábyrgð fyrirtækja
    • Finnur Sveinsson, varaformaður Festu og sérfræðingur í samfélagsábyrgð hjá Landsbankanum
  • 9:45       Pallborðsumræður
      • Auk frummælanda taka þátt í pallborði:
      • Drífa Snædal, framkvæmdastóri SGS
      • Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ

Fundarstjóri: Halldóra Sveinsdóttir, formaður Bárunnar stéttarfélags