Lestur launaseðla - námskeið

ER LAUNASEÐILLINN FLÓKINN?

Viltu aðstoð við að skilja hann?

Eining-Iðja ætlar að halda námskeið fyrir félagsmenn þar sem farið verður yfir hvað eigi að koma fram á launaseðlinum og hvernig eigi að lesa út úr honum. Námskeiðið verður kl. 20:00 mánudaginn 23. september nk. í sal félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri.

Leiðbeinandi verður Björn Snæbjörnsson.

Námskeiðið er ókeypis!

TAKTU LAUNASEÐLA MEÐ ÞÉR!

Skráning sem fyrst í síma 460 3600 eða á annajul@ein.is